,,Þetta er frábært tækifæri að koma hingað við bestu aðstæður og dæma alvöru leiki," sagði Kristinn Jakobsson þegar Fótbolti.net ræddi við hann á La Manga á Spáni í gær.
Kristinn er staddur á Spáni þar sem hann dæmir á Copa del Sol æfingamótinu en hann dæmir Rosenborg-Gautaborg á morgun og Tromsö-Kalmar á sunnudag ásamt Smára Stefánssyni og Birki Sigurðarsyni sem eru honum til aðstoðar.
Kristinn bíður síðan spenntur eftir næstu niðurröðun hjá UEFA fyrir leiki í Evrópudeildinni.

,,Það eru leikir í febrúar og við krossum fingur og vonumst til að fá tækifæri þar en það er óljóst hvað verður," sagði Kristinn. ,,Maður vonast eftir að fá verkefni því það hefur gengið framúrskarandi vel og maður hefur fengið góða dóma og góða leiki."
Kristinn vonar að fleiri íslenskir dómarar muni fá leiki í stærri mótum í framtíðinni.
,,Ég held að komandi kynslóð komi til með að gera tilkall til þess. Þorvaldur Árnason og Gunnar Jarl eru að koma inn en það tekur tíma að fara þessa leið."
,,Þeir byrja á yngri mótum og minni leikjum en með réttu hugarfari og gæðum þá koma þeir örugglega til með að fá stærri verkefni," sagði Krisitnn en hann segir erfitt fyrir íslenska dómara að komast langt.
,,Þetta er búið að að vera mjög erfið ganga því að það er mikil pólitík í þessu og annað slíkt. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að við erum frá litlu landi og erum að dæma leiki sem eru ekki á því ,,leveli" sem hin liðin eru að spila á í Evrópukeppni og annað slíkt."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.