Heimild: Sporting Life
Framhaldssagan um Carlos Tevez heldur áfram en Argentínumaðurinn gæti nú mögulega spilað með Manchester City áður en tímabilið er úti.
Tevez hefur ekki komið við sögu síðan hann neitaði að hita upp í leik gegn FC Bayern í september og hann hefur síðan verið í fríi í Argentínu frá því í nóvember.
Tevez hefur ekki komið við sögu síðan hann neitaði að hita upp í leik gegn FC Bayern í september og hann hefur síðan verið í fríi í Argentínu frá því í nóvember.
AC Milan, Inter og PSG sýndu Tevez áhuga í janúar en á endanum hættu félögin öll við að kaupa hann. Tevez er því ennþá leikmaður Manchester City og Roberto Mancini stjóri liðsins útilokar ekki að nota leikmanninn eitthvað á tímabilinu.
,,Það er ekki möguleiki með Carlos í augnablikinu en það er möguleiki í framtíðinni ef hann kemur til baka," sagði Mancini.
,,Ég vona hans vegna að hann hafi verið að æfa síðustu þrjá mánuðina til að halda sér í formi. Það er einungis eitt sem ég er að hugsa um og það er enska úrvalsdeildin. Ef hann kemur til baka hins vegar og er í formi þá er allt mögulegt."


