Heimild: West London
Mark Hughes, stjóri QPR, segir að Heiðar Helguson hafi ennþá hlutverki að gegna hjá félaginu.
Hughes keypti framherjana Djibril Cisse og Bobby Zamora á lokadegi félagaskiptagluggans og því er samkeppnin orðin mikil fyrir Heiðar.
Hughes keypti framherjana Djibril Cisse og Bobby Zamora á lokadegi félagaskiptagluggans og því er samkeppnin orðin mikil fyrir Heiðar.
Heiðar er markahæsti leikmaður QPR með níu mörk á tímabilinu og Hughes segir að hann komi ennþá til greina í liðið þegar hann snýr aftur eftir meiðsli.
,,Heiðar er meiddur í augnablikinu svo hann er ekki leikfær en þegar hann verður heill að nýju þá kemur hann til greina. Við þurfum leikmenn með mismunandi hæfileika gegn mismunandi andstæðingum," sagði Hughes.
,,Við höfum verið að kaupa og það sem ég vildi fá voru framherjar sem vega hvorn annan upp og ég held að við höfum fengið það. Ég er mjög ánægður með framherjana sem við höfum."



