Heimild: Eyjafréttir
Dönsku leikmennirnir Kenneth Stenild Nielsen og Christian Olsen verða til reynslu hjá ÍBV um helgina en þetta kemur fram á vef Eyjafrétta.
Leikmennirnir munu leika með ÍBV gegn ÍA í Akraneshöllinni á morgun í leik um 5. sætið í Fótbolta.net mótinu. Þeir verða einnig í eldlínunni í æfingaleik gegn Aftureldingu á sunnudag.
Nielsen er markvörður en Olsen er sóknarmaður. Nielsen var um tíma til reynslu hjá ensku stórliðunum Arsenal og Manchester United og hefur spilað með öllum yngri landsliðum Danmerkur en Rasmus Christiansen varnarmaður ÍBV mælir sérstaklega með honum.
Hinn 29 ára gamli Olsen, er lágvaxinn framherji sem hefur spilað með 1. deildarliðinu Skive IK í Danmörku. Hann þykir afar fljótur og fékk m.a. viðurnefnið Speedy þegar hann lék með FC Midtjylland í dönsku úrvalsdeildinni.
Alls skoraði hann 13 mörk í 34 leikjum með liðinu en var lánaður sumarið 2008 til Viborg þar sem hann skoraði 2 mörk í 14 leikjum. Hann færði sig svo yfir til Viborg en lék aðeins fimm leiki á 2008-2011 og skoraði tvö mörk í þeim leikjum. 2011 færði hann sig svo yfir til Skive.
Kenneth Stenild Nielsen er 25 ára markvörður sem hefur verið í herbúðum danska úrvalsdeildarliðsins AC Horsens síðan 2009. Hans hlutverk hefur hins vegar verið að verma tréverkið að mestu en hann hefur aðeins spilað tvo leiki með liðinu.
Áður hafði hann spilað 11 leiki fyrir danska félagið Aab, m.a. í hinni sálugu Intertoto Evrópukeppni þar sem hann lék tvo leiki. Hann hefur hins vegar spilað með öllum yngri landsliðum Danmerkur, m.a. 1 leik fyrir U-20 ára landsliðið.



