Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 03. febrúar 2012 19:30
Magnús Már Einarsson
Milan Stefán Jankovic á UEFA Pro námskeið
Mynd: Fótbolti.net - Egill Tómasson
Milan Stefán Jankovic, aðstoðarþjálfari Grindvíkinga, mun á mánudag fara til Sarajevo í Bosníu/Herzegóvínu þar sem hann fer á námskeið til að fá UEFA Pro þjálfaragráðuna.

Milan Stefán verður ytra í tvær vikur en hann mun fara nokkrum sinnum á námskeið næstu mánuðina.

,,Þetta tekur 18 mánuði. Ég fer þrisvar á þessu ári og tvisvar á næsta ári," sagði Milan Stefán við Fótbolta.net.

Mikil ásókn er í sæti á námskeiðinu en Milan Stefán komst inn þar sem hann spilaði lengi í fremstu röð í Júgóslavíu á sínum tíma.

Milan Stefán kom til Íslands fyrir 20 árum en hann lék um árabil með Grindvíkingum áður en hann fór að þjálfa hjá félaginu.

Nokkrir aðrir aðilar eru með UEFA Pro þjálfaragráðu á Íslandi en það eru Atli Eðvaldsson, Gorazd Mihailov, Guðjón Þórðarson, Heimir Hallgrímsson Sigurður Ragnar Eyjólfsson, Teitur Benedikt Þórðarson, Willum Þór Þórsson, Zeljko Sankovic, Þorvaldur Örlygsson.
Slapp
banner
banner