Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 15:00
Elvar Geir Magnússon
Kristján Finnboga: Fyrst og fremst markmannsþjálfari
„Það hefur ekkert breyst. Bjarni er enn aðalmarkvörður," segir Kristján Finnbogason sem kom óvænt í markið hjá Fylki á Reykjavíkurmótinu í gær. Hann kom inn sem varamaður í jafnteflisleik gegn Þrótti.

Kristján verður 41 árs á árinu en hann er þekktastur sem markvörður KR um margra ára skeið. Síðustu ár hefur hann spilað í markinu hjá Gróttu.

Eftir síðasta sumar lagði hann hanskana til hliðar og er nú markmannsþjálfari hjá Fylki.

Hanskarnir verða þó til taks ef á þarf að halda.

„Ég er fyrst og fremst markmannsþjálfari. Ég hef þó verið í marki á æfingum þegar þess hefur þurft og mun halda því áfram. Það var fínt að spila þennan leik í gær, maður sér hlutina öðruvísi þegar maður er inná vellinum."

Bjarni Þórður Halldórsson er aðalmarkvörður Fylkismanna.

„Svo höfum við tvo unga markverði sem eru í öðrum flokki. Ég vona að Bjarni haldist bara heill," segir Kristján en honum lýst vel á Fylkisliðið.

„Mér lýst ljómandi vel á allt hérna. Við höfum samt ekki náð að spila á okkar sterkasta liði þar sem lykilmenn hafa verið meiddir."

Fylkismenn unnu B-riðil Reykjavíkurmótsins en leikið verður í undanúrslitum á fimmtudeginum í næstu viku.
Slapp
banner
banner