John Terry verður ekki með Chelsea þegar liðið mætir Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag en hann er að glíma við hnémeiðsli.
Terry hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu en hann var sviptur fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu í dag.
Terry er sakaður um að hafa verið með kynþáttafordóma í garð Anton Ferdinand varnarmanns QPR í október síðastliðnum en réttarhöldum í málinu hefur verið frestað fram í júlí.
Í vikunni var umræða um að Rio Ferdinand ,varnarmaður Manchester United og bróðir Antons, myndi neita að taka í höndina á Terry fyrir leikinn á sunnudag en nú er ljóst að ekki kemur til þess þar sem Terry verður ekki með.
Líklegt er að Gary Cahill taki stöðu Terry á sunnudag og leiki sinn fyrsta leik með Chelsea.
Ashley Cole verður einnig í leikbanni í leiknum en Andre-Villas Boas stjóri Chelsea á eftir að ákveða hvort Jose Bosingwa eða Ryan Bertrand byrji í vinstri bakverðinum í hans stað.



