Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 03. febrúar 2012 15:40
Elvar Geir Magnússon
Brynjar Kristmunds: Rankaði við mér í sjúkrabílnum
Myndasyrpa af atvikinu fyrir neðan
Brynjar Kristmundsson á sjúkrahúsinu.
Brynjar Kristmundsson á sjúkrahúsinu.
Mynd: Rúnar Geirmundsson
„Þetta var þungt og gott högg," segir Brynjar Kristmundsson, bakvörður Vals, sem steinrotaðist í leik Vals og Fjölnis í Reykjavíkurmótinu í gær.

Valsmenn unnu leikinn 5-0 en Brynjar þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik eftir að hafa lent í samstuði við Sindra Snæ Jensson, markvörð Vals.

„Þeir voru að taka innkast inn í teigin, ég var bara að elta minn mann þegar Sindri markvörður kemur út á fleygiferð og ég lendi svona í mjöðminni á honum," segir Brynjar.

„Ég datt síðan inn og út og rankaði svo alveg við mér í sjúkrabílnum. Eina sem ég man frá því að samstuðið átti sér stað var þegar ég var kominn upp í bílinn."

Brynjar skartar myndarlegu glóðarauga eins og sést á meðfylgjandi mynd en hann má ekki æfa fótbolta næstu fjórar vikurnar.

„Ég vaknaði í morgun með dúndrandi hausverk og smá verk í hálsinum. Það er enginn fótbolti næsta mánuðinn en ég fæ að byrja að hlaupa eitthvað fyrir það."

Þar sem Fjölnismenn tefldu fram ólöglegum leikmanni í fyrstu tveimur leikjum sínum á Reykjavíkurmótinu átti Valur ekki möguleika að komast áfram þegar flautað var til leiks í gær. „Þetta er svolítið pirrandi en það er ekkert sem við getum gert. Við vorum sjálfir búnir að koma okkur í þessa stöðu," segir Brynjar.

Brynjar kom til Vals í fyrra á lánssamningi frá Víkingi Ólafsvík en gekk alfarið í raðir Hlíðarendafélagsins í vetur.










Slapp
banner