Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 16:00
Magnús Már Einarsson
Twitter dagsins - Elokobi steinsofandi
Emmanuel Frimpong leikmaður Wolves tók þessa mynd af varnartröllinu George Elokobi sem var þreyttur í dag.
Emmanuel Frimpong leikmaður Wolves tók þessa mynd af varnartröllinu George Elokobi sem var þreyttur í dag.
Mynd: Twitter
Verðlaunagripurinn á Fótbolta.net mótinu.  Breiðablik og Stjarnan leika til úrslita í Kórnum klukkan 12:30 á morgun.
Verðlaunagripurinn á Fótbolta.net mótinu. Breiðablik og Stjarnan leika til úrslita í Kórnum klukkan 12:30 á morgun.
Mynd: Twitter
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter síðasta sólarhringinn. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.

Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet



Kristján Guðmundsson leikmaður Vals:
Gangi þér vel Ingólfur, í Danaveldi, og takk fyrir tímann með okkur í Val #101Valur

Guðmundur Benediktsson íþróttalýsandi á Stöð 2 Sport:
Það hefði verið rosalegt ef að Fjölnir hefði komist upp með'a að spila leikmanni sem var skráður í b-lið þeirra! #einmitt

Matthías Vilhjálmsson leikmaður FH:
Afar stoltur faðir í dag eftir að sonur minn 3 ára sagðist ætla verða dómari og markvörður þegar hann yrði stór! #framtíðin

Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamaður á DV:
Magnað að England er á góðri leið með að eyðileggja fyrir sér EM þegar enn eru 5 mánuðir í mót. Endalaus óeining. #euro2012

Jóhann Laxdal leikmaður Stjörnunnar:
Það er greinilegt að England vill ekki ná árangri á EM í sumar #KingJohnTerry

Gary Martin leikmaður ÍA:
Hver er næsti fyrirliði Englands ? Hlýtur að vera Gerrard !!

Elvar Geir Magnússon ritstjóri á Fótbolta.net:
Erfitt að velja næsta fyrirliða Englands. Mestu leiðtogatípurnar líklegir til að vera meiddir á EM og/eða komnir yfir síðasta söludag

Yngvi Eysteinsson útvarpsmaður á Flass 104,5:
Barton í landsliðið og bandið á hann! #Venjulegir #fotbolti

Rio Ferdinand leikmaður Manchester United:
Frábær æfing í dag...vil einungis einbeita mér að því að spila með Man utd & ef ég verð valinn í enska landsliðið þá verð ég stoltur eins og alltaf

Oliver Holt íþróttastjóri á Daily Mirror:
Nýr landsliðsfyrirliði Englendinga? Mitt val yrði Scott Parker.
Slapp
banner
banner
banner