Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 05:55
Elvar Geir Magnússon
Úrslitaleikur Fótbolta.net mótsins í dag: Breiðablik - Stjarnan
Í Kórnum klukkan 12:30
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 12:30 verður flautað til leiks í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins 2012. Að þessu sinni eru það Breiðablik og Stjarnan sem leika til úrslita en þetta er annað árið sem mótið fer fram.

Í fyrra vann Keflavík sigur á ÍBV í úrslitaleiknum eftir vítaspyrnukeppni en með því að smella hér má lesa umfjöllun um þann leik.

Úrslitaleikurinn fer fram í Kórnum og er aðgangur ókeypis. Ef jafnt verður að loknum 90 mínútum er farið beint í vítaspyrnukeppni.

Leikirnir um þriðja og fimmta sætið á mótinu verða einnig í dag.

Úrslitaleikur:
12:30 Breiðablik - Stjarnan (Kórinn)

Leikur um þriðja sætið:
12:00 Grindavík - FH (Reykjaneshöllin)

Leikur um fimmta sætið:
12:00 ÍA - ÍBV (Akraneshöllin)
Slapp
banner
banner