Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 05:55
Elvar Geir Magnússon
Leikir dagsins hér heima - Leiknir eða KR áfram?
Úrslitaleikur Fótbolta.net mótsins verður í Kórnum í dag. Þar mætast Breiðablik og Stjarnan klukkan 12:30. En það verða einnig tveir leikir í Reykjavíkurmótinu.

Þá klárast keppni í A-riðli. Þegar hefur Fram tryggt sér í undanúrslitin en Leiknir og KR geta eiga möguleika á að fylgja Frömurum þangað.

Leiknir tryggir sér sæt í undanúrslitum með sigri á Fram. KR getur komist áfram með því að vinna ÍR ef Leiknir misstígur sig í leiknum á undan. Stöðuna í riðlinum má sjá hér neðst.

Reykjavíkurmót - A riðill:
15:00 Leiknir - Fram (Egilshöll)
17:00 ÍR - KR (Egilshöll)

Faxaflóamót kvenna:
12:15 Breiðablik - FH (Fífan)
18:00 Afturelding - ÍBV (Varmárvöllur)
18:00 Haukar - ÍA (Ásvellir)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp