Grétar Rafn Steinsson er að glíma við meiðsli aftan í læri. Hann verður ekki með Bolton á morgun þegar liðið mætir Norwich á útivelli í ensku úrvalsdeildinni.
Frá þessu er greint í Bolton News en meiðslin eru ekki alvarleg og reiknað með að hann missi af þessum eina leik. Bolton er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Frá þessu er greint í Bolton News en meiðslin eru ekki alvarleg og reiknað með að hann missi af þessum eina leik. Bolton er tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.
Heiðar Helguson er enn á meiðslalistanum hjá QPR og leikur ekki gegn Wolves. Eggert Gunnþór Jónsson var í byrjunarliði Wolves í síðasta leik og verður það vonandi aftur á morgun.
QPR er með stigi meira en Bolton en Wolves er í fallsæti.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea heimsækja West Brom á morgun. Swansea er í fjórtánda sæti deildarinnar.



