Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England - Leikir dagsins: Man City fær Fulham í heimsókn
Sjö leikir eru á dagskrá í dag í ensku úrvalsdeildinni, en það gætu nokkrir Íslendingar verið í eldlínunni í dag.

Arsenal fær Blackburn Rovers á Emirates leikvanginn, en Arsene Wenger stjóri Arsenal þarf á sigri á halda til þess að stýra liðinu aftur á beinu brautina á meðan Steve Kean og félagar í Blackburn reyna að forðast fallbaráttuna.

QPR mætir Wolves þá á Loftus Road. Heiðar Helguson er líklega ekki með QPR í leiknum, en það má þó búast við því að Eggert Gunnþór Jónsson verði í hópnum hjá Úlfunum. Þá gæti Grétar Rafn Steinsson verið í eldlínunni hjá Bolton sem mætir Norwich City á útivelli.

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea ferðast til West Brom og mæta lærisveinum Roy Hodgson en Gylfi hefur verið að spila vel hjá velska liðinu frá því hann kom á láni frá þýska liðinu Hoffenheim í byrjun janúargluggans.

Topplið Manchester City fær þá Fulham í heimsókn sem varð fyrir blóðtöku í lok janúar, en liðið missti Bobby Zamora til QPR. City fékk aftur á móti David Pizzarro frá AS Roma og gæti hann leikið sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Leikir dagsins á Englandi:

13:00 Arsenal - Blackburn (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 Norwich City - Bolton Wanderers (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 QPR - Wolves (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 Stoke City - Sunderland (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 WBA - Swansea City (Beint á Stöð 2 Sport 2)
15:00 Wigan Athletic - Everton (Beint á Stöð 2 Sport 2)
17:30 Manchester City - Fulham (Beint á Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner
banner