Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Spánn - Leikir dagsins: Nær Real Madrid tíu stiga forskoti?
Fimm leikir fara fram í efstu deild á Spáni í dag, en bæði stórliðin Barcelona og Real Madrid eiga leik.

Topplið Real Madrid kíkir í heimsókn til Getafe. Real er á toppnum með 52 stig og freistir þess að auka forskot sitt á meðan Getafe situr í 9. sæti deildarinnar með 28 stig eftir tuttugu umferðir.

Maður myndir halda að Barcelona ætti auðveldan leik gegn Real Sociedad svo í seinasta leik kvöldsins, en ekkert er gefins í þessari deild og minni liðin hafa verið að stríða stóru liðunum í gegnum árin. Börsungar þurfa á sigri að halda en liðið er nú sjö stigum á eftir Real í öðru sæti. Sociedad er hins vegar í tólfta sætinu með 24 stig.

Leikir dagsins á Spáni:

18:00 Athletic Bilbao - Espanyol
18:00 Levante - Racing Santander
18:00 Real Mallorca - Real Betis
20:00 Getafe - Real Madrid (Beint á Stöð 2 Sport 2)
22:00 Barcelona - Real Sociedad (Beint á Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner