Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 18:30
Elvar Geir Magnússon
Óeirðir í Egyptalandi - Tveir skotnir til bana í Suez
Óeirðir eru í Egyptalandi þar sem að götuslagsmál hafa verið í gangi milli lögreglu og íbúa í Kaíró. Spjót beinast að stjórnvöldum, lögreglu og hernum.

Kveikt var í byggingu við innanríkisráðuneyti landsins en mótmælandi og herlögreglumaður létust í átökum í dag. Lögreglan beitti táragasi á mótmælendur sem voru að kasta grjóti.

Í Suez hefur einnig komið til átaka og voru tveir skotnir til bana þegar hópur fólks reyndi að yfirtaka lögreglustöð í bænum.

Ófremdarástand ríkir í landinu eftir að yfir 74 létust í slagsmálum eftir leik Al-Ahly og Al-Masry í vikunni.
Slapp
banner