Arnar Þór Viðarsson verður í símaviðtali í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu FM 97,7 á morgun. Þátturinn er á dagskrá milli 12 og 14 eins og alla laugardaga.
Arnar hefur átt góðu gengi að fagna með Cercle Brugge í Belgíu.
Arnar hefur átt góðu gengi að fagna með Cercle Brugge í Belgíu.
Þá er von á að Viðar Guðjónsson, sparkspekingur og leikmaður Fjölnis, og Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður, kíki í heimsókn.
Rætt verður um leiki helgarinnar í enska boltanum, mál John Terry og pistil Óla Stefáns Flóventssonar svo eitthvað sé nefnt.
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson. Hægt er að finna þá á Twitter undir @elvargeir og @tomthordarson.
Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

