Sex leikir fara fram í dag í þýska boltanum, en margir áhugaverðir leikir eru á dagskrá þessa vikuna.
Michael Ballack og félagar í Bayer Leverkusen mæta Stuttgart. Leverkusen situr í sjötta sæti deildarinnar 30 stig á meðan Stuttgart situr í því tíunda með 23 stig en bæði lið hafa leikið nítján umferðir.
Hamburger SV mætir þá Bayern Munchen í hörkuleik. Hamburger situr í 12. sætinu með 22 stig en er engu að síður með sterkan hóp. Munchen situr aftur á móti á toppnum með 40 stig.
Það er ljóst að sætaskipti gætu orðið um helgina, en þrjú lið eru með 40 stig. Schalke gæti tekið toppsætið með sigri á Mainz en það verður að koma í ljós.
Leikir dagsins í Þýskalandi:
14:30 Bayer Leverkusen - Stuttgart
14:30 Hertha Berlin - Hannover
14:30 Hoffenheim - Augsburg
14:30 Schalke - Mainz
14:30 Wolfsburg - Borussia Monchengladbach
17:30 Bayern Munchen - Hamburger SV



