Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Hörður lék vel í sigri varaliðs Juventus á Grosseto
Hörður Björgvin Magnússon
Hörður Björgvin Magnússon
Mynd: Juventus.com
Hörður Björgvin Magnússon leikmaður Juventus á Ítalíu lék með varaliði félagsins sem sigraði varalið Grosseto með tveimur mörkum gegn engu í gær.

Hörður, sem er 18 ára gamall lék allan leikinn í hjarta varnarinnar en hefur verið að festa sig í byrjunarlið varaliðsins. Hann hefur leikið síðustu þrjá leiki, en þeir voru gegn Modena, Livorno og núna Grosseto.

Varaliðið er í titilbaráttunni líkt og aðallið félagsins, en Juventus situr í 1. sæti A-riðilsins með 37 stig eftir sautján umferðir. Fiorentina er fimm stigum á eftir þeim, en liðið á hins vegar leik til góða í dag.

Hörður gerði fjögurra og hálfs árs samning við Juventus á dögunum, en hann kom til félagsins frá Fram. Hann hafði þá verið á láni hjá ítalska stórliðinu frá því í janáur á síðasta ári áður en vistaskipti hans urðu til frambúðar.
Slapp
banner
banner