Heimild: Soccerway
Juan Manuel Mata, leikmaður Chelsea á Englandi vonast til þess að gengi liðsins breytist sem fyrst, en liðið leikur við Englandsmeistara Manchester United í deildinni á morgun.
Chelsea hefur gengið illa að klára leikina að undanförnu, en síðustu tveir leikir liðsins hafa endað með jafntefli gegn Swansea City og Norwich City. Það þýðir þá að liðið er 12 stigum á eftir Manchester-liðunum en Chelsea er að missa af lestinni í baráttunni um titilinn.
Spænski vængmaðurinn Juan Manuel Mata segir að liðið þurfi að bregðast fljótt við til þess að ná sér á strik aftur og að það verði að byrja gegn Man Utd á morgun.
,,Við erum ekki sáttir með okkar frammistöðu að undanförnu. Við erum ekki að spila nægilega vel í ensku úrvalsdeildinni og við þurfum að bregðast fljótt við, það er okkar mikilvægasta verkefni," sagði Mata.
,,Þú getur aldrei sagt að eitthvað sé ómögulegt í fótbolta, en í augnablikinu þá er bilið of stórt milli okkar og Manchester City og United. Það eru alltof mörg stig þarna á milli, þess vegna er leikurinn gegn United svo mikilvægur fyrir okkur," sagði hann að lokum.



