Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fös 03. febrúar 2012 21:30
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Dortmund skellti sér á toppinn
Nurnberg 0 - 2 Borussia Dortmund
0-1 Sebastian Kehl ('48 )
0-2 Lucas Barrios ('82)

Borussia Dortmund sigraði Nurnberg með tveimur mörkum gegn engu í þýsku deildinni í kvöld en Dortmund komst á toppinn með sigrinum.

Sebastian Kehl skoraði fyrra markið á 48. mínútu leiksins, en það síðara skoraði framherjinn knái Lucas Barrios sem hefur verið orðaður við stærstu félög í Evrópu undanfarna mánuði.

Dortmund er því í fyrsta sæti alla vega fram til morguns, en þar situr liðið með 43 stig, þremur stigum á undan Bayern Munchen og Schalke en þau eiga þó bæði leik á morgun og getur Munchen endurheimt toppsætið með sigri á Hamburger SV.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner