Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 04. febrúar 2012 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sky 
Perch: Væri heimska að yfirgefa Newcastle
James Perch, leikmaður Newcastle United á Englandi segist njóta sín hjá félaginu, en talið var að hann myndi yfirgefa liðið í félagaskiptiglugganum sem var að lokast.

Perch, sem er 26 ára gamall hefur ekki spilað mikilvægustu rulluna í liði Newcastle en hefur verið hugsaður sem varamaður. Hann kom inná gegn Blackburn Rovers í síðustu umferð og lék virkilega vel í 2-0 sigri.

,,Ég get ekki fundið neina ástæða af hverju ég ætti að yfirgefa Newcastle. Maður væri virkilega heimskur að fara frá félagi sem er á góðri leið með að ná langt og er með bestu stuðningsmenn Englands á bakinu," sagði Perch.

Newcastle er í fimmta sæti deildarinnar með 39 stig eftir 23 umferðir, en árangur liðsins hefur verið ótrúlegur í vetur. Þó svo stuðningsmenn liðsins séu ekki jafn ánægðir með eiganda liðsins Mike Ashley þá er stjórinn Alan Pardew þó sennilega í miklum metum hjá þeim.
Slapp
banner
banner
banner