Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Daily Express 
Sir Bobby Charlton: Messi er frábær lítill knattspyrnumaður
Sir Bobby Charlton, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins segir að hann væri til í að sjá argentíska snillinginn Lionel Messi hjá Barcelona í herbúðum félagsins.

Messi, sem er 24 ára gamall er besti knattspyrnumaður heims um þessar mundir en hann hefur hlotið nafnbótina þrjú ár í röð af knattspyrnusambandi FIFA. Hann hefur unnið alla titla sem hægt er að vinna hjá Barcelona á Spáni þrátt fyrir ungan aldur.

Bobby Charlton sem er goðsögn í heimi knattspyrnunnar segir að hann væri ólmur til að sjá Messi hjá sínu gamla félagi Manchester United.

,,Messi væri frábær fyrir hvaða lið sem er, en ég efast þó um að hann muni nokkurn tímann yfirgefa Barcelona," sagði Charlton.

,,Ef eitthvað lið gæti náð að lokka hann til sín þá væri það lið að fá besta knattspyrnumann heims. Hann er þarna fyrir alla að sjá, gjörsamlega frábær þessi leikmaður."

,,Hann er rosalega lítill leikmaður. Sum mörkin sem hann skorar eru svo spennandi og svo eru mörk þar sem hann þarf enga hjálp. Hann er bara frábær lítill knattspyrnumaður og fólkið í Argentínu ætti að vera stolt yfir því að hann sé argentískur."

,,Hann er í sama klassa og Alfredo Di Stefano, Johan Cruyff og Pele. Þegar hann hættir í boltanum þá verður hann sjálfkrafa einn af þeim. Hann verður leikmaður sem fólk mun tala um að eilífu,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner
banner
banner