Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Goal.com 
Villas-Boas: Mourinho setur okkur alla undir pressu
Andre Villas-Boas, knattspyrnustjóri Chelsea segir að stjórar stærstu liða á Englandi séu stöðugt undir álagi frá Jose Mourinho þjálfara Real Madrid.

Mourinho stýrði Chelsea við góðan orðstír frá árunum 2004 til 2007, en hann gerði liðið meðal annars að Englandsmeisturum ásamt því að ná langt með liðið í Meistaradeild Evrópu.

Hann þjálfar spænska stórliðið Real Madrid í dag, en hann hefur þó verið sterklega orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildinni og hefur Villas-Boas varað stjóra stærstu liða á Englandi við að þeir gætu misst starf sitt ef þeir standa sig ekki í stykkinu.

,,Hann er samningsbundinn besta félagsliði í heimi núna, en það eina sem ég get sagt er að ég veit hversu mörg lið koma á eftir honum. Ég sá bara þegar við vorum hjá Chelsea hvað mörg lið voru að banka á dyrnar hjá honum," sagði Villas-Boas.

,,Hann er þjálfari sem er opinn fyrir því að snúa aftur og því vekur það áhuga frá Man City, Man Utd, Chelsea, Tottenham, Liverpool og Arsenal. Þess vegna erum við allir undir pressu frá honum," sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner