KV sigraði Reyni Sandgerði 2-0 í æfingaleik sem fór fram á gerivgrasvellinum í Vesturbæ í gær.
Bæði þessi lið leika í annarri deildinni í sumar en KV vann þriðju deildina á síðasta tímabili.
Gunnar Kristjánsson, sem kom til KV frá FH í haust, skoraði fyrra markið í gær og síðara markið var sjálfsmark hjá Sandgerðingum.
Þá sigraði KH lið ÍH 3-1 í æfingaleik á gervigrasvellinum að Hlíðarenda í gær en bæði þessi lið leika í þriðju deildinni.
KV 2 - 0 Reynir Sandgerði
1-0 Gunnar Kristjánsson
2-0 Sjálfsmark
KH 3 - 1 ÍH
Mörk KH: Ragnar Þór Ragnarsson 2, Hjalti Sigurðarson
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet


