Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 08:06
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur KSÍ 
9,5 milljón króna hagnaður hjá KSÍ
KSÍ var rekið með 9,5 milljón króna hagnaði árið 2011 og gert er ráð fyrir 80 þúsund króna hagnaði á árinu 2012.
KSÍ var rekið með 9,5 milljón króna hagnaði árið 2011 og gert er ráð fyrir 80 þúsund króna hagnaði á árinu 2012.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnusamband Íslands skilaði rétt tæplega 9,5 milljón króna hagnaði á síðasta ári en það er nokkur viðsnúnignur frá árinu 2010 þegar sambandið tapaði rúmlega 15,7 milljónum króna.

Þetta kemur fram í ársreikningi sambandsins sem var birtur á vef sambandsins í gær.

Þar kemur fram að rekstrartekjur sambandsins á árinu námu 766 milljónum króna árið 2011 samanborið við 723 milljónir á árinu áður.

Hækkun rekstrartekna skýrist fyrst og fremst af hækkun sjónvarpstekna og auknu framlagi frá UEFA. Rekstrarkostnaður KSÍ var í samræmi við áætlanir eða um 705 milljónir króna.

Því var rekstrarhagnaður 61 milljón króna sem var fimm milljónum betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Að teknu tilliti til fjármagnsliða er hagnaður af starfsemi KSÍ um 92 milljónir króna.

Þá dragast frá styrkir og framlög til aðildarfélaga sambandsins vegna barna- og unglingastarfs, leyfiskerfis og fleira. Eftir standa þá þessar tæplega 9,5 milljónir króna í hagnað.

Fjárhags – og eignastaða KSÍ er traust við áramót og lausafjárstaða góð. Handbært fé um 338 milljónir króna og eignir alls 813 milljónir króna. Eigið fé KSÍ var um 228 milljónir króna í árslok.

Gert er ráð fyrir 80 þúsund króna hagnaði á árinu 2012 en nánar má lesa um þessi mál í skjölunum sem vísað er í hér að neðan.

Ársreikningur 2011

Fjárhagsáætlun 2012
Slapp
banner
banner