Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sports Illustrated 
Downing hreinsaður af ásökunum um líkamsárás
Stewart Downing, leikmaður Liverpool á Englandi hefur verið hreinsaður af ásökunum um líkamsárás á fyrrverandi kærustu sinni.

Downing, sem er 27 ára gamall var að skemmta sér á skemmtistaðnum Yarm á Norður-Englandi í byrjun janúar og var sakaður um að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína líkamlegu ofbeldi.

Lögreglan á Englandi hefur þó staðfest að Downing hefur verið hreinsaður af ásökunum um meinta líkamsárás, en hann var í yfirheyrslu hjá lögreglunni snemma morguns þann 8. janúar síðastliðinn.

Downing kom til Liverpool frá Aston Villa síðasta sumar fyrir um 20 milljónir punda. Áður lék hann þá með Middlesbrough, en margir leikmenn Boro fara einmitt á skemmtistaðinn Yarm reglulega.
Slapp
banner
banner
banner