Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 10:10
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Soccernet 
Martin Jol: Andy Johnson nálgast nýjan samning við Fulham
Martin Jol knattspyrnustjóri Fulham er vongóður um að Andy Johnson skrifi fljótlega undir nýjan samning við félagið. Samningur hins þrítuga Andy Johnson mun renna út í lok leiktíðarinnar en vangaveltur hafa verið uppi að undanförnu hvort leikmaðurinn ætli að róa á önnur mið. Ljóst er að bæði QPR og Blackburn föluðust eftir starfskröftum Johnsons í janúarglugganum þrátt fyrir að vistaskiptin hafi ekki orðið að veruleika.

Hvað sem því líður, þá er Jol ánægður með að hafa þennan fyrrverandi landsliðsmann Englands innan sinna raða og trúir því að leikmaðurinn sé nálægt því að skrifa undir nýjan samning.

,,Það voru þreifingar frá einu eða tveimur félögum þannig að við urðum að taka ákvörðun varðandi þessi tilboð," sagði Jol.

,,Ég sagði við Andy að hann yrði hérna áfram sama hvað gengi á og það hefur eflaust ekki verið hans óskastaðan. Það reynist mér hins vegar vel því nú getum við haldið áfram okkar vinnu og vonandi á hann eftir að geta spilað fyrir okkur og skorað mörk.

Samningurinn hans rennur út í lok tímabilsins en hann hefur verið frekar óviss um sína framtíð. Við höfum gert honum tvívegis tilboð og í seinna skiptið þá buðum við honum einmitt það sem hann vildi en það var tveggja og hálfs árs samningur þannig að við hljótum að vera að nálgast. Ágreiningsefnið var tímalengd samningsins," sagði Jol að lokum.

Andy Johnson mun hins vegar missa af ferðalagi Fulham til Manchester City um helgina en kappinn er meiddur í nára. Hann ætti þess vegna að geta íhugað framtíðina og hvort hann vilji söðla um og fara frá Craven Cottage.
Slapp
banner
banner