Heimild: BBC
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið úr ensku miðlunum.
Barcelona hefur sjö sinnum fylgst með Gareth Bale á tímabilinu og ætlar að reyna að kaupa hann með öðrum leikmanni og peningum í sumar. (Daily Mirror)
Arsenal hefur sett Olivier Giroud markahæsta leikmann frönsku deildarinnar sem spilar með Montpellier efstan á óskalista sumarsins. (The Sun)
Rússneska félagið Anzhi Makhachkala sem á endlaust af peningum vonast til að ná í Carlos Tevez en hefur ekki enn lagt fram tilboð í þennan leikmann Manchester City. (Daily Mail)
Darren Bent framherji Aston Villa segist ánægður hjá félaginu og að umræða um að hann sé á leið til Liverpool sé hlægileg. (talkSPORT)
Johnny Heitinga varnarmaður Everton er á óskalista Spartak Mosvku. (talkSPORT)
Brasilíski miðjumaðurinn Ganso er á óskalista Tottenham en ætlar að vera áfram hjá Santos. (Goal.com)
Liverpool íhugar að reyna að ná í Diego Godin og Alvaro Dominguez varnarmenn Atletico Madrid. (Inside Futbol)
Fabio Capello landsliðsþjálfari Englands er brjálaður yfir því að enska knattspyrnusambandið tók fyrirliðabandið af John Terry og athugaði samning sinn með hvort hann gæti hindrað ákvörðunina. (Daily Mirror)
Terry ætlar að hætta með landsliðinu því honum finnst hann ekki njóta stuðnings enska sambandsins. (Daily Express)
Arsene Wenger stjóri Arsenal gæti endurhugsað félagaskiptastefnu sína í sumar ef félagið kemst ekki í Meistaradeildina í fyrsta sinn í 15 ár. (Times)
Ryan Giggs er 38 ára en ætlar samt að framlengja um eitt ár til viðbótar hjá Manchester United. (Manchester Evening News)
Kenny Dalglish stjóri Liverpool segir ekki öruggt að Luis Suarez fái sæti í liðinu að nýju þegar átta leikja banni hans lýkur. (Daily Star)




