Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 11:21
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Vefur ÍA 
Kári Ársælsson í ÍA (Staðfest)
Frá undirskriftinni í morgun.
Frá undirskriftinni í morgun.
Mynd: Vefur ÍA
Kári Ársælsson sem hefur verið fyrirliði Breiðabliks undanfarin ár er genginn til liðs við nýliða ÍA í Pepsi-deild karla. Frá þessu var gengið í morgun en Kári skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Kári er 26 ára gamall varnarmaður sem lengst af hefur spilað með liði Breiðabliks en hann var meðal annars fyrirliði liðsins þegar það hampaði Íslands- og bikarmeistaratitli árin 2009 og 2010. Kári lék sinn fyrsta meistaraflokksleik með liði Blika árið 2002, en þá var hann 17 ára gamall en í heildina hefur hann leikið 121 keppnisleiki í mfl. og skorað í þeim 7 mörk.

„Þetta leggst bara hrikalega vel í mig, Skaginn var alltaf fyrsti valkostur í mínum huga þegar ég heyrði af þeirra áhuga en ég var með tvenna möguleika frá liðum úr fyrstu deildinni," sagði Kári á vef ÍA í morgun.

,,Ég mætti á mína fyrstu æfingu með liðinu í síðustu viku og leist strax vel á mig enda vel tekið á móti mér. Umgjörðin og öll aðstaða hér á Akranesi er eins og best verður á kosið enda er Skaginn klúbbur með mikla sigurhefð og sögu og er mér mikill heiður að vera búinn að skrifa undir hjá félaginu."

Kári býr og starfar á Reykjavíkursvæðinu og mun hann því koma til með að keyra á milli á æfingar með félaginu:

„Ég set það ekkert fyrir mig að þurfa keyra á milli, ég mun keyra með Jóni Vilhelm og Hlyni Hauks en ég þekki þá báða og þegar maður kominn á réttan stað í gott lið, þá finnst mér það ekkert tiltökumál að þurfa að transporta svona á milli.“
Slapp
banner