Heimild: Express
Massimo Taibi, sem er að margra mati einn lélegasti markvörður sem nokkru sinni hefur klæðst treyju Manchester United, hefur nú komið David De Gea til stuðnings og segir hann að ungi markvörðurinn þurfi tíma.
Hinn ítalski Taibi spilaði einungis fjóra leiki fyrir United eftir að hann kom frá Venezia fyrir 4,5 milljónir punda. Síðasti leikurinn var 5-0 tap gegn Chelsea, eftir hvert hann var kallaður „blindi maðurinn frá Feneyjum."
De Gea hefur verið harðlega gagnrýndur frá því að hann gekk til liðs við United frá Atletico Madrid fyrir tæpar 18 milljónir punda, en hann mun þó líkast til standa á milli stanganna næsta mánuðinn vegna meiðsla Anders Lindegaard.
Taibi telur þó að framtíðin sé björt fyrir Spánverjann unga og að hann geti orðið jafn góður og Peter Schmeichel og Edwin van der Sar.
,,Ég get sagt ykkur það að það er ekki auðvelt að vera markvörður Manchester United. David getur samt höndlað það," sagði Taibi.
,,Hann er ennþá ungur og hefur hæfileika til að vera í heimsklassa. United hefur litla þolinmæði og vill að hlutirnir gerist strax. Ég var bara þarna í örfáa mánuði, gerði nokkur mistök og var farinn. David þarf bara tíma."
,,Ég myndi bara segja honum að hugsa til besta markvarðar United, Peter Schmeichel. Hann byrjaði ekki vel en það vita allir hvernig það endaði."
,,David stóð sig vel hjá Atletico og ég er viss um að hann mun standa sig á Old Trafford. Hann er einn sá besti í Evrópu."



