Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 04. febrúar 2012 12:52
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Hernandez: Markaþurrð Torres mun halda áfram
Javier Hernandez framherji Manchester United segir að martröð Fernando Torres fyrir framan markið muni halda áfram þegar Mexíkóinn og félagar mæta Chelsea á sunnudag.

Torres hefur ekki skorað í ensku úrvalsdeildinni síðan í september 2011 gegn Swansea og eru því 17 deildarleikir sem hann hefur spilað án marks. Skelfileg tölfræði fyrir mann sem kostaði Chelsea 50 milljónir punda í janúar í fyrra.

Hernandez býst við að stórleikur helgarinnar verði 18. leikurinn sem Torres verður að þola án þess að skora.

,,Fernando Torres er einn af bestu framherjum Evrópu, á því liggur enginn vafi," sagði Hernandez við Daily Star.

,,En hann hefur ekki getað skorað undanfarið og ég tel að hann muni ekki ná að skora gegn United á sunnudaginn."
Slapp
banner
banner