Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 13:25
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
O'Neill: Sessegnon er frábær
Martin O'Neill stjóri Sunderland er gríðarlega hrifinn af Benín-manninum Stephane Sessegnon, en hann hefur verið einn af bestu leikmönnum Sunderland á tímabilinu.

Steve Bruce, fyrrum stjóri liðsins, fékk Sessegnon á leikvang ljóssins frá Paris St Germain í janúar 2011 en hann átti erfitt með að aðlagast enska boltanum til að byrja með.

Hann hefur hins vegar verið frábær á þessu tímabili og þá sérstaklega eftir að O'Neill tók við.

,,Sessegnon hefur verið frábær og haft mikil áhrif á okkar leik," sagði O'Neill.

,,Hann þarf í raun ekkert að aðlagast. Hann er frábær fótboltamaður og passar vel í liðið."

,,Það er mjög margt gott við hans spilamennsku. Hann er með góðan leikskilning og gefur okkur aðra vídd."

,,Í vikunni klobbaði hann leikmann Norwich af fimm metra færi í aðdraganda annars marksins okkar."

Slapp
banner
banner