Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 14:12
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Soccernet 
Steven Gerrard: Suarez mun hjálpa okkur að "þrennunni"
Steven Gerrard fyrirliði Liverpool er sannfærður um að liðið geti leikið eftir þann frábæra árangur sem náðist árið 2001 þegar liðið vann þrjá titla, núna þegar Luis Suarez hefur afplánað 9 leikja keppnisbann í það heila.

Fyrir 11 árum var Gerrard einn af lykilmönnum Liverpool sem vann enska deildabikarinn, ensku bikarkeppnina og Evrópudeildina auk þess að koma félaginu í Meistaradeild Evrópu.

Á núverandi keppnistímabili getur Liverpool ekki unnið Evrópudeildina en bikarkeppnirnar tvær og þátttökuréttur í deild bestu liða álfunnar er ennþá til staðar.

Bítladrengirnir eru nú þegar komnir í úrslitaleikinn gegn Cardiff í deildabikarnum og eftir að hafa slegið út Manchester United í ensku bikarkeppninni virðist rauði herinn til alls líklegur. Ekki er Kenny Dalglish þjálfari liðsins heldur úrkula vonar um Meistaradeildarsæti því Liverpool er aðeins fjórum stigum á eftir Chelsea í þeirri baráttu.

Suarez hefur misst af 9 síðustu leikjum Liverpool en kappinn hlaut tvö keppnisbönn frá enska knattspyrnusambandinu en þessi landsliðsmaður Úrúgvæ er loksins gjaldgengur aftur þegar lekmenn Tottenham koma í heimsókn á Anfield Road næstkomandi mánudagskvöld. Hásetinn Gerrard er fullur tilhlökkunar fyrir komandi verkefni eftir að vera tiltölulega nýkominn aftur tilbaka eftir meiðsli.

,,Luis getur hjálpað okkur að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur, að enda meðal fjögurra efstu auk þess að komast í tvo úrslitaleiki," sagði Gerrard í viðtali við BBC Sport.

,,Ég er alveg sannfærður því hann er hágæða leikmaður. Luis hefur sýnt það síðast liðið ár að hann er einn besti leikmaður heims og við viljum hafa slíka menn tiltæka. Hans hefur verið sárt saknað og allir hlakka til að bjóða hann velkominn aftur," sagði Steven Gerrard að lokum.
Slapp
banner
banner