Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   lau 04. febrúar 2012 13:56
Alexander Freyr Tamimi
Fótbolta.net mótið: Tíu mörk á Skaganum - Grindavík tók 3.sætið
Tveimur leikjum sem fram fóru í Fótbolta.net mótinu í dag er lokið. Boðið var upp á hörkuleik þegar ÍA og ÍBV kepptu um 5. sætið í mótinu, en lokatölur eftir venjulegan leiktíma urðu 5-5.

Eyjamenn komust í 3-0 í Akraneshöllinni. Christian Olsen, Dani sem er á reynslu hjá ÍBV, skoraði fyrsta mark leiksins og skömmu síðar bætti Tryggvi Guðmundsson við öðru.

Jón Vilhelm Ákason minnkaði síðan muninn fyrir heimamenn í 3-2 með tveimur mörkum á skömmum tíma. Gary Martin jafnaði síðan metin fyrir Skagamenn.

Tryggvi Guðmundsson kom ÍBV síðan yfir, en það stóð þó ekki lengi. Gary Martin jafnaði metin á nýjan leik og voru mörkin í leiknum nú orðin átta.

Fjörið var þó hvergi nærri búið, Tryggvi Guðmundsson bætti við fimmta mark Eyjamanna í leik sem var farinn að minna frekar á handbolta heldur en fótbolta.

Skagamenn voru þó ekki á þeim buxunum að gefast upp og jöfnuðu þeir metin á 93. mínútu í 5-5. Voru það lokatölur og fór þessi viðureign ekki í vítaspyrnukeppni.

Það voru svo Grindvíkingar sem tóku 3. sæti mótsins eftir að hafa unnið FH í vítaspyrnukeppni. Lokatölur voru 1-1 eftir venjulegan leiktíma en FH-ingar voru lengi manni færri eftir að Pétur Viðarsson fékk rauða spjaldið snemma leiks. Emil Pálsson kom FH yfir rétt fyrir leikhlé en Magnús Björgvinsson jafnaði metin snemma í seinni hálfleik.

ÍA 5 - 5 ÍBV
0-1 Christian Olsen
0-2 Tryggvi Guðmundsson
0-3 Christian Olsen
1-3 Jón Vilhelm Ákason
2-3 Jón Vilhelm Ákason
3-3 Gary Martin
3-4 Tryggvi Guðmundsson
4-4 Gary Martin
4-5 Tryggvi Guðmundsson
5-5 Dean Martin

Grindavík 1 - 1 FH (5-4 eftir vítaspyrnukeppni)
1-0 Emil Pálsson ('45)
1-1 Magnús Björgvinsson ('48)
Rautt spjald: Pétur Viðarsson (FH) ('12)

Vítaspyrnukeppnin:

0-0 Ólafur Örn Bjarnason brenndi af
0-1 Matthías Vilhjálmsson skorar
0-1 Scott Ramsey brenndi af
0-1 Atli Guðnason brenndi af
1-1 Alexander Magnússon skorar
1-2 Albert Brynjar Ingason skorar
2-2 Tomi Ameobi skorar
2-2 Guðmann Þórisson brenndi af
3-2 Ray Anthony Jónsson skorar
3-3 Brynjar Guðmundsson skorar
4-3 Óli Baldur Bjarnason skorar
4-4 Gunnleifur Gunnleifsson skorar
5-4 Matthías Örn Friðriksson skorar
5-4 Jón Ragnar Jónsson brenndi af
Slapp
banner