Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 15. maí 2012 06:00
Magnús Már Einarsson
Ægir fær góðan liðsstyrk fyrir þriðju deildina
Arilíus Marteinsson.
Arilíus Marteinsson.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Ægir úr Þorlákshöfn hefur undanfarna daga fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í þriðju deildinni í sumar.

Arilíus Marteinsson og Ingi Rafn Ingibergsson eru komnir til félagsins frá Selfyssingum þar sem þeir hafa spilað undanfarin ár en Arilíus lék meðal annars átján leiki með liðinu í fyrra.

Hafþór Atli Agnarsson er kominn á láni frá BÍ/Bolungarvík en hann skoraði eitt mark í fimmtán leikjum í fyrstu deildinni í fyrra.

Markvörðurinn Magnús Karl Pétursson hefur tekið fram hanskana og skipt í Ægi.

Magnús var á mála hjá Stjörnunni í fyrra og í vetur lék hann með ÍR áður en hann ákvað að setja hanskana á hilluna.

Þá hafa Ægismenn einnig fengið serbneska kantmannin Predrag Dordevic í sínar raðir sem og Ivan Razumovis frá Kanada.
Athugasemdir
banner
banner