Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fótbolta.net hafa fyrirspurnir og tilboð borist frá liðum í efstu deild í Andra Rúnar Bjarnason framherja BÍ/Bolungarvíkur núna í vikulokin.
Samúel Samúelsson formaður BÍ/Bolungarvíkur vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í kvöld. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur félagið fengið tilboð frá einu liði og önnur lið sent fyrirspurnir og svo gæti farið að hann skipti um lið áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðarmótin.
Andri Rúnar Bjarnason er 22 ára gamall framherji sem hefur verið að standa sig vel með BÍ/Bolungarvík 1. deildinni í sumar. Hann hefur skorað 5 mörk í 12 leikjum í deild og bikar.
Hann hefur allan sinn feril spilað með BÍ/Bolungarvík þar sem hann hóf meistaraflokksferilinn árið 2005. Síðan þá hefur hann skorað 57 mörk í 117 leikjum í deild og bikar.



