Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. mars 2004 00:00
Magnús Már Einarsson
Hin Hliðin - Ray Anthony Jónsson, Grindavík
Mynd: Magnús Már Einarsson
Tvisvar í viku sýnir nýr leikmaður á sér hina hliðina hér á Fótbolti.net. Ray Anthony Jónsson hefur leikið með GG, Völsungi og Grindavík þar sem að hann leikur nú. Ray getur leikið flestar stöður á vellinum og hefur spilað sem bakvörður, kantmaður eða sóknarmaður hjá Grindavík svo eitthvað sé nefnt. Ray hefur áður verið nefndur sem grófasti leikmaður deildarinnar hér í hinni hliðinni hjá okkur en hann fékk tvö rauð spjöld í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar. Hann lék fimmtán leiki og skoraði tvö mörk í deildinni en auk þess skoraði hann glæsilegt mark úr aukaspyrnu í Evrópuleik gegn Karnten og munaði mjög litlu að það mark hefði tryggt Grindvíkingum áframhaldandi þáttöku í keppninni. Hægt er að sjá hina hliðina á Ray með því að smella hér.
Athugasemdir
banner
banner