Selfyssingar hafa samið við spænska framherjann Javier Zurbano Lacalle en hann mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.
Zurbano var á reynslu hjá Selfyssingum á dögunum en hann skoraði tvívegis í 3-1 sigri liðsins á Stjörnunni í Fótbolta.net mótinu.
Zurbano var á reynslu hjá Selfyssingum á dögunum en hann skoraði tvívegis í 3-1 sigri liðsins á Stjörnunni í Fótbolta.net mótinu.
Zurbano er 32 ára gamall en hann lék síðast með Coruxo í spænsku C-deildinni.
Á ferli sínum hefur hann leikið með nokkrum liðum í spænsku neðri deildunum.
Hér að neðan má sjá svipmyndir úr leikjum með Zurbano.
Athugasemdir