Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 04. febrúar 2014 21:02
Alexander Freyr Tamimi
Myndband: Fyrsta mark Hólmberts fyrir Celtic
Hólmbert Aron Friðjónsson.
Hólmbert Aron Friðjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmbert Aron Friðjónsson var á skotskónum þegar U20 ára lið Celtic sigraði Partick Thistle í gær.

Hólmbert kom Celtic í 1-0 með marki á níundu mínútu en þetta var hans fyrsta mark í treyju Celtic.

Undir lokin lagði Hólmbert einnig upp fjórða mark Celtic þegar hann gaf var óeigingjarn í færi og gaf boltann á John Herron sem skoraði.

Hólmbert kom til Celtic frá Fram en hann fékk leikheimild í Skotlandi um áramótin. Hólmbert var að glíma við meiðsli á dögunum en hann hefur ekki ennþá komið við sögu með aðalliðinu.

Þó styttist vonandi í það ef hann heldur áfram að skora með U20 liðinu.

Hér að neðan má sjá myndband af marki og stoðsendingu Hólmberts gegn Partick Thistle.

Celtic 4 - 0 Partick Thistle (u20) from John on Vimeo.


Athugasemdir
banner
banner
banner