Furðulegar hliðar fótboltans
Fjöldi fótboltafélaga í Suður Ameríku voru stofnuð af Englendingum í byrjun tuttugustu aldarinnar og mörg þeirra fengu því sömu nöfn og ensk fótboltafélög. Eitt af þeim þekktustu er Everton í Chile sem var stofnað af enskum innflytjendum árið 1909 eða stuttu eftir að enska félagið sem ber sama nafn hafði farið í keppnisferð til Suður Ameríku.
Lið Liverpool sem á sér höfuðsstöðvar í Mondevideo höfuðborg Úrúgvæ var stofnað árið 1915 af hópi háskólanemenda. Þá vantaði nafn á félagið til að geta tekið þátt í landskeppninni og munu hafa valið Liverpool eftir að hafa horft á kort af heiminum í landafræði tíma. Liðið á hinsvegar lítið sameiginlegt með enska liðinu því þeir leika í röndóttum, bláum og svörtum treyjum og hafa aldrei unnið titil heimafyrir en enska liðið sem hefur verið mjög sigursælt leikur eins og allir vita í rauðum búningum.
Í Namibíu er hinsvegar annað lið með nafnið Liverpool. Þeir leika í rauðum treyjum og hvítum buxum og unnu bikarinn árið 1992 og deildina heima í fyrsta sinn árið 2002. Þá er líka til Liverpool lið í Kenýa sem á höfuðsstöðvar í Mombasa.
Elsta félagið í Chile með breskt nafn eru Rangers sem var stofnað árið 1902 í Talca af hópi kaupsýslumanna á svæðinu. Litlar tengingar eru við skoska félagið en þeir leika í rauðum og svörtum treyjum, samskonar og varabúningur Glasgow Rangers er.
Lið Ajax frá Amsterdam í Hollandi er með formlegar tengingar við lið með sama nafni sem er staðsett í Höfðaborg í Suður Afríku en síðastnefnda félagið hefur sent leikmenn til þess hollenska, emeðal annars Benni McCarthy og Steven Pienaar. Annað hollenskt félag, Feyenoord hefur nýtt sér þessa hugmynd og vonast til að njóta góðs af unglingastarfi Feyenoord í Ghana sem er í þeirra eigu. Tvö önnur félög sem tengjast formlega eru Chivas í Guadalajara og Chivas í Bandaríkjunum en Jorge Vergara viðskiptajöfur í Mexíkó á þau bæði.
Ástralska félagið Newcastle United Jets hafa enga formlega tengingu við enska félagið sem ber sama nafn en þó stungið hafi verið upp á samstarfi fyir nokkrum árum þá var það aldrei frágengið. Ástralska félagið bætti við Jets hlutanum á nafnið er A-deildin var stofnuð þar í fyrra.
Arsenal er líklega útbreiddasta nafn á fótboltaliði í heiminum en allir þekkja vitaskuld enska félagið sem ber þetta nafn. Arsenal Futbol Club di Sarandi var stofnað í Argentínu árið 1957 af hópi fótboltaáhugamanna en þeirra á meðal var Julio Grondona sem í dag er forseti argentíska knattspyrnusambandsins. Liðið sem á höfuðsstöðvar í úthverfi Buenos Aires komst í efstu deild í Argentínu árið 2002.
Í Úkraínu breytti CSKA Kiev nafni sínu í Arsenal Kiev í vetrarfríinu tímabilið 2001-2002. Arsenal í Lesotho voru stofnaðir árið 1983 af hópi stuðningsmanna enska félagsins. Þeir spila í rauðum treyjum og hvítum buxum og hafa meira að segja gælunafnið Gunners eins og enska félagið. Þeir hafa unnið deildina heima 1989, 1991 og 1993.
Annars staðar í Afríku eru ensku nöfnin líka vinsæl og í Mauritius má finna lið með nafnið West Bromwich Albion frá Beau Bassin sem leika sem stendur í næst efstu deild. Í Ghana spila Queens Park Rangers á Prempeh College Park í Kumasi og nafnið Blackpool er þekkt í Gambíu, Sierra Leone og Zambíu.
Roman Abramovich veit kannski ekkert af því en í Namibíu er til lið sem heitir Chelsea og leikur á 5000 manna Omulunga leikvangnum í Grootfontein. Ekki endast öll ensk nöfn þó því árið 2004 var Blackburn í Zambíu breytt í Chambishi.
En það eru fleiri en bara nöfn enskra liða sem þekkjast útí heimi því Barcelona Guayaquil í Ekvador voru stofnaðir árið 1925 af spænska innflytjandanum Eutimi Perez og nefndir eftir uppáhaldsliði hans á Spáni. Merki liðanna er svipað en liðið frá Ekvador leikur í gulum treyjum og svörtum buxum. Þeir hafa tvisvar komist í úrslitaleik Libertadores bikarsins sem er Meistaradeild þeirra Suður Ameríkumanna. Meðal fyrrum leikmanna þeirra er Ivan Kaviedes fyrrum landsliðsframherji Ekvador.
Ekki er vitað um mörg ítölsk liðanöfn útí heimi en þó má nefna Juventus í Belize sem á höfuðsstöðvar í bænum Orange Walk.
Furðulegar hliðar fótboltans er liður hér á Fótbolta.net þar sem ein óvenjuleg saga tengd fótbolta er sögð alla virka daga. Við tökum ábendingum um slíkar sögur fegins hendi en bendum fólki þá á netfangið [email protected].
Smelltu hér til að sjá yfirlit yfir allar fréttir úr ,,Furðulegar hliðar fótboltans".


