Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   mið 11. júlí 2007 23:42
Magnús Már Einarsson
Fylkismenn spiluðu í Þórs búningum í kvöld
Víðir Leifsson og Páll Einarsson leikmenn Fylkis í búningum Þórs í leiknum í kvöld.
Víðir Leifsson og Páll Einarsson leikmenn Fylkis í búningum Þórs í leiknum í kvöld.
Mynd: Pedromyndir
Fylkismenn léku í varabúningum Þórs þegar að liðið sigraði 4-1 í leik liðanna á Akureyri í VISA-bikanum í kvöld. Kristinn Jakobsson dómari mat það svo að appelsínugulur búningur Fylkis væri of líkur búningi Þórs og því fékk Árbæjarliðið varabúninga Þórs lánaða.

,,Málið var að Kristinn Jakobsson taldi að búningarnir væru of líkir. Við vorum með appelsínugula búninginn okkar. Ég sem fyrrverandi leikmaður Þórs var með það á hreinu að Þórsbúnungurinn væri hvít treyja og rauðar buxur en hann lítur allt öðruvísi út í dag og er rauður og svört treyja," sagði Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis við Fótbolta.net í kvöld.

,,Ég veit að margur gamall Þórsarinn snýr sér við í gröfinni að horfa upp á þetta. Ég held að við höfum litið meira út sem Þórsarar en Þórsarar í kvöld."

Þrátt fyrir að hafa gengið vel og náð að gera fjögur mörk ætlar Leifur ekki að láta sína menn leika í Þórsbúningum í framtíðinni. ,,Nei, við náðum að skora fjögur mörk í þeim en þetta væri ekki flókið ef að það væru einhverjar treyjur sem gerðu gæfumuninn," sagði Leifur að lokum.
Slapp
banner