Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 24. júlí 2007 16:59
Hafliði Breiðfjörð
Viðtal við þjálfarana í Ofurfótboltaskólanum á Selfossi
Richard, Dominico og Vincent.
Richard, Dominico og Vincent.
Mynd: Selfoss
Vincent segir krökkunum til.
Vincent segir krökkunum til.
Mynd: Selfoss
Elsti hópurinn í Ofurfótboltaskólanum.
Elsti hópurinn í Ofurfótboltaskólanum.
Mynd: Selfoss
Miðhópurinn.
Miðhópurinn.
Mynd: Selfoss
Yngsti hópurinn.
Yngsti hópurinn.
Mynd: Selfoss
Eins og áður hefur komið fram á Fótbolta.net, stóð Knattspyrnudeild Selfoss fyrir Ofurfótboltaskóla í samstarfi við Fótbolta.net, Toyota Selfossi, Hótel Selfoss, Rauða Húsið á Eyrarbakka, Veitingastaðin Menam og Vilbergs bakarí.

Gekk skólinn mjög vel og ekki nokkur spurning að hann hefur hjálpað fótboltastjórnum framtíðarinnar að verða betri. Góð aðsókn var í skólann og börn allstaðar af landinu sem sóttu skólan og dæmi um að krakkar hafi komið alllaleið frá Sandgerði og Grindavík

Enda engir smá þjálfarar sem stýrðu skólanum, en það voru þeir Richard Stevens sem lét nýverið að störfum hjá Birmingham akademíunni eftir sjöára farsælan þjálfaraferil þar, síðasta árið var hann einnig yfirmaður akademíunnar, auk þess sem hann hefur gefið út þjálfarablaðið ,,The Soccer coaches” ásamt félögum sínum.

Þá þjálfaði Vincent Hutton þjálfari hjá Newcastle Utd akademíunni í skólanum, hefur Vincent þjálfað í 10 ár í Newcastle Utd akademíunni við góðan orðstíl og þar áður hjá Midlesbourgh, mikill reynslubolti þar á ferð. Einnig þjálfaði Dominico Tedaldi ungur og efnilegur þjálfari sem hefur verið að gera góða hluti sem þjálfari hjá hinum ýmsu liðum á Englandi.

Hér að neðan má sjá nokkrar spurningar sem þjálfararnir svöruðu um dvölina á Íslandi

Hvernig stóð á því að þið takið þátt í fótboltaskóla á Selfossi?
Það var haft samband við okkur og við þurftum eðlilega að hugsa okkur aðeins um en eftir nánari viðræður sáum við að um spennandi hluti væri að ræða sem hefur heldur betur ræst.

Hvað hefur komið ykkur mest á óvart við knattspyrnuumhverfið á Selfossi?
Kultúrinn á Selfossi er góður, þetta opna knattspyrnusvæði í miðjum bænum gefur frábæra möguleika, þetta höfum við ekki í okkar borgum á Englandi.

Nú hafi þið fylgst með æfingum hér, er eitthvað öðruvísi í þjálfun barna á Selfossi og á Englandi?
Já við erum mest ánægðir með fjöld æfinga hérna, það er frábært að krakkar frá 6 ára æfi fjórum sinnum í viku, heima æfum við 2-3 í viku. Við vorum einmitt að tala um það í gær að krakanir hér standi krökkunum heima allan samanburð.

En er einhver hegðunar munur á börnum hér og úti?
Já sennilega er sjálfstraustið meira hjá krökkunum hér, einn níu ára var t.d tilbúinn að kenna mér í gær hvernig best væri að hafa æfinguna . Áhuginn og ástríðan fyrir fótbolta er ótrúlega mikil hjá sumum krökkunum hér, þau eru á æfingum, koma svo í skólann til okkar, fara heim í mat og eru svo kominn strax út á völl aftur að æfa sig.

Nú er ljóst að krakknir á Selfossi og ekki síður þjálfararnir eru að læra mikið á komu ykkar, en getið þið eittvað lært af fótboltanum á Selfossi?
Já hérna erum við að sjá hluti sem við höfum ekki séð áður í knattspyrnuþjálfun. Það er heimaverkefni á dvd diskum með krökkum af svæðinu. Þetta er svo góð hugmynd hjá Selfoss og á eftir að skila ykkur miklu í framtíðinni og ætlum við að fá þetta í gegn hjá okkar félögum. Því eins og þið hugsið þetta: hvernig verða krakkar afreks námsmenn, jú með einbeitingu í tímum og að vera dugleg að læra heima og auðvita gildir það sama í fótboltanum.

Þannig að þið gætuð hugsað ykkur að koma aftur?
Já ekki spurning, nú er bara að vona að við höfum staðið okkur nægilega vel til að koma í ofur fótboltaskólann að ári, við erum búnir að sækja um það.

Hvað má Selfoss helst bæta í sinni þjálfun?
Þeir verða að taka strax upp afreks þjálfun, öll börn eiga skilið að fá verkefni við sitt hæfi. Flest börn fá verkefni við sitt hæfi á æfingum, en svo eru alltaf einn og jafnvel uppí fimm í hverjum árgang sem þurfa meiri ögrun og þeir mega ekki gleymast.

Hvað þurfa foreldrar efnilegra knattspyrnubaran að hugsa um?
Mjög mikilvægt er að foreldrar haldi sér í jafnvægi, þó barnið þeirra eigi möguleika á atvinnumennsku. Það er mikið farið að bera á hálfgerðri sturlun hjá sumum foreldrum í Englandi ef barninu gengur vel í fótbolta og eru dæmi þar sem foreldrar hafa eyðilagt draum barnsins með frekju, yfirgangi og óraunhæfum kröfum.

Eitthvað að lokum?
Já við höfðum mjög gaman af því á fimmtudaginn þegar Selfoss vann Í.B.V í 2. flokk, Selfoss var 0-1 undir þegar við komum og þá sagði Vincent “æ-i erum við undir?” Og svo fögnuðum við örugglega mest á vellinum þegar Selfoss tryggði sér sigur 3-1. Furðulegt að aðlagast svo fljótt liði, sem við vissum ekki hvernig búningarnir væru á litinn hjá, fyrir viku síðan.
Slapp
banner
banner