Fótbolti.net, Sandgerði - Sigurpáll Árnason
Hafsteinn Ingvar Rúnarsson kom Reyni yfir 1-0 í kvöld en hér er hann í kröppum dansi í fyrri leik Reynismanna og Stjörnunnar í sumar.
Reynir Sandgerði 3 - 1 Stjarnan
1-0 Hafsteinn Rúnarsson (26)
1-1 Guðjón Baldvinsson (30)
2-1 Árni Freyr Guðnason (90)
3-1 Martin Bach Kristensen (90)
Rautt spjald: Guðjón Baldvinsson (Stjarnan) (58)
1-0 Hafsteinn Rúnarsson (26)
1-1 Guðjón Baldvinsson (30)
2-1 Árni Freyr Guðnason (90)
3-1 Martin Bach Kristensen (90)
Rautt spjald: Guðjón Baldvinsson (Stjarnan) (58)
Fínt veður var til knattspyrnuiðkunnar á Sparisjóðsvellinum í Sandgerði í kvöld þegar heimamenn í Reyni tóku á móti Stjörnunni.
Greinilegt var að bæði lið vildu sækja sigur í kvöld því leikurinn hófst með mikill baráttu og hörku. Fátt var þó um færi á upphafsmínútunum, einna helst voru Það leikmenn Stjörnunnar sem voru að skapa sér eitthvað.
Eftir um kortersleik slapp Guðjón Baldvinsson í gegnum vörn Reynis en Atli Jónasson gerði vel í markinu og varði. Stuttu seinna áttu Stjörnumenn svo skot í slánna á marki Reynismanna.
Á 24 mínútu kom svo hættulegasta færi leiksins og það áttu heimamenn, Hafsteinn Ingvar Rúnarsson átti þá sendingu fyrir markið sem Martin Bach Kristensen tók vel niður og hamraði á markið, Ögmundur Ólafsson í marki Stjörnunnar varði vel en boltinn barst í fætur Jóhanns Magna Jóhannssonar sem stóð einn á móti galopnu marki en á óskiljanlegan hátt tókst honum ekki að hitta knöttinn, hann fékk þó annað tækifæri en skaut þá í varnarmann Stjörnunnar sem kominn var á línuna.
Fyrsta mark leiksins kom svo á 26 mínútu, Atli Jónasson markvörður Reynis átti þá langa spyrnu fram, boltinn skoppaði þar yfir varnarmann Stjörnunnar, Ögmundur kom út á móti knettinum en einhver misskilningur varð þá á milli hans og eins varnarmanns Stjörnunnar, það nýtti Hafsteinn Ingvar Rúnarsson sér, stakk sér á milli þeirra og lagði boltann í netið og heimenn komnir í 1-0.
Stjörnumenn voru ekki lengi að átta sig og jöfnuðu metin á 30 mínútu, Guðjón Baldvinsson slapp þá einn í gegn og afgreiddi boltann vel framhjá Atla, heimamenn vildu þó meina að rangstöðulykt væri af markinu. Fátt fleira gerðist í fyrrihálfleiknum og staðan því 1-1 í leikhléi.
Seinni hálfleikur einkenndist af mikilli hörku og menn gáfu ekkert eftir. Stjörnumenn voru þó alltaf skrefinu á undan og virtust mun líklegri til að bæta við marki. Fátt var þó um færi og var það einna helst skot Sigurbjörns Ingimundarsonar, leikmanns Stjörnunnar, sem skall í þverslá Reynismanna sem skapaði einhverja hættu.
Á 58 mínútu dró svo til tíðinda. Eftir baráttu Hafsteins Helgasonar og Guðjóns Baldvinssonar um knöttinn sem barst svo í innkast virtist sem Guðjón hafi eitthvað sagt, annaðhvort við Hafstein eða aðstoðardómarann, því slakur dómari leiksins, Þóroddur Hjaltalín, gaf Guðjóni beint rautt spjald og leikmenn og áhorfendur stóðu eftir gáttaðir.
Á 77 mínútu gerðu Reynismenn breytingu á liði sínu, Árni Freyr Guðnason kom þá inn fyrir Jóhann Magna Jóhannsson og hann átti eftir að breyta gangi leiksins. Stuttu eftir að hafa komið inn átti hann góðann skalla að marki Stjörnunnar sem stefndi í bláhornið en Ögmundur varði alveg frábærlega.
Leikurinn virtist vera að fjara út þegar Davíð Örn Hallgrímsson, leikmaður Reynis, fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan Vítateig Stjörnunnar á 92 mínútu. Áðurnefndur Árni Freyr tók spyrnuna og setti boltann snyrtilega í fjærhornið. Strax eftir markið ætluðu Stjörnumenn sér að jafna metin og sóttu, Reynismenn nýttu sér það og geystust í skyndisókn, Árni Freyr fékk þá knöttinn og lék inn í teig, lagði boltann svo út í teiginn og þar kom Martin Bach Kristensen og lagði boltann auðveldlega í netið.
Lokatölur því 3-1 fyrir heimamenn og kærkominn sigur fyrir þá í fallbaráttunni sem framundan er. Reynismenn sitja þó enn í neðsta sæti með 11 stig, jafn mörg og Leiknir sem á þó leik til góða en næsti leikur Reynismanna er einmitt gegn Leikni í Breiðholtinu á föstudaginn eftir viku.



