Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fös 05. október 2007 15:56
Magnús Már Einarsson
Liverpool fylgist með Arnari Darra
Arnar Darri ásamt u-17 ára landsliðinu.
Arnar Darri ásamt u-17 ára landsliðinu.
Mynd: Myndasafn KSÍ
Nokkur erlend félög hafa spurst fyrir um Arnar Darra Pétursson sextán ára markvörð hjá Stjörnunni en þetta staðfesti Þorlákur Árnason yfirþjálfari yngri flokka hjá félaginu við Fótbolta.net í dag.

Liverpool fylgdist meðal annars með Arnari þegar hann lék með U17 ára landsliði Íslendinga í undankeppni EM á dögunum.

Þessi efnilegi markvörður hefur áður farið út til Arsenal, Reading og Everton á reynslu en eins og fyrr segir hafa nokkur félög spurst fyrir um hann að undanförnu.

Liverpool hafa líka áhuga á því að fá Skagamanninn, Björn Bergmann á reynslu til sín eins og við greindum frá í gær.

Sjá einnig:
Liverpool vilja fá Björn Bergmann á reynslu
Slapp
banner