Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 22. nóvember 2007 13:21
Magnús Már Einarsson
Marel yfirgefur Molde - Gæti neyðst til að hætta knattspyrnuiðkun
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Marel Baldvinsson hefur fengið sig lausan frá norska félaginu Molde og er á leið aftur heim til Íslands. Hins vegar er möguleiki á að hann þurfi að hætta knattspyrnuiðkun vegna þrálátra meiðsla.

,,Ég er laus allra mála hjá mér. Ég held að þetta hafi verið það besta í stöðunni fyrir báða aðila úr því sem komið var," sagði Marel við Fótbolta.net í dag en hann átti eitt ár eftir af samningi sínum við Molde.

Molde komst upp úr norsku 1.deildinni á dögunum en Marel fann sig ekki vel hjá félaginu og greindi meðal annars frá því í viðtali við Fréttablaðið á dögunum þar sem hann sagðist vilja yfirgefa félagið.

Marel sem er 26 ára gamall gekk til liðs við Molde í fyrra eftir að hafa leikið vel með uppeldisfélagi sínu Breiðablik en hann skoraði ellefu mörk í þrettán leikjum og var markahæstur í Landsbankadeildinni 2006.

Á ferlinum hefur Marel átt við mikil hnémeiðsli að stríða. Hann mun núna flytjast heim til Íslands en hins vegar er óvíst hvort hann haldi áfram í fótbolta.

,,Ég ætla aðeins að taka mér tíma og hugsa hvort ég ætli að spila fótbolta áfram. Ég þarf að ræða við lækna og hvað þeir ráðleggja mér að gera í sambandi við hnéð, það er ekki alveg eins og nýtt."

,,Ég þarf að spá í því hvað er skynsamlegast að gera út frá því heilsufarslega séð. Það er erfitt að ætla að fara að hætta þegar maður er ekki eldri en þetta þannig að þetta er eitthvað sem maður þarf að íhuga vel,"
sagði Marel við Fótbolta.net í dag.

Á ferlinum hefur Marel einnig leikið með norska liðinu Stabæk og belgíska liðinu Lokeren. Hann á fimmtán landsleiki að baki en sá síðasti var gegn Svíum í október í fyrra.
Slapp
banner
banner