Miklar breytingar á eigendahópi í enska félaginu QPR hafa orðið til þess að ef litið er á heildarauð eigendanna verður að telja félagið ríkasta knattspyrnufélag heims í dag og þá er verið að tala um að þeir toppi Roman Abramovich og Chelsea.
Nýjasti eigandinn í QPR er indverski stáljöfurinn Lakshmi Mittal sem keypti í gær 20% hlut í félaginu. Hann er talinn vera fimmti ríkasti maður heims og er metinn á 50 milljarða punda.
Auk hans eiga í félaginu Formula 1 jöfrarnir Berrnie Ecclestone og Flavio Briatore sem einnig sitja í stjórn ásamt Amit Bhatia syni Lakshmi.
,,Þessi fjárfesting Mittal fjölskyldunnar í QPR er frábært skref í átt að frekari uppgangi félagsins og styður metnað núverandi hluthafa í að komast í úrvalsdeildina í nánustu framtíð," sagði Bhatia í yfirlýsingu fyrir hönd QPR.
,,Nýja fjármagnið sem hefur verið lagt í QPR mun hjálpa til við að fjármagna það verkefni sem þarf til að hjálpa okkur að ná okkar markmiðum."
Ecclestone sem er aðalkallinn í Formula 1 kappaksturskeppninni og Briatore sem stýrir Renault liðinu í þeirri keppni náðu yfirtökum í QPR í nóvember og björguðu félaginu um leið enda var allt að fara í vaskinn.
Liðið er sem stendur í botnsæti Championchip deildarinnar sem er næst efsta deild Englands en með komu Mittal fjölskyldunnar má búast við leikmannakaupum í janúar.


