Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   lau 23. febrúar 2008 14:08
Hafliði Breiðfjörð
Myndir af hrottalega brotinu á Eduardo - EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
Á myndinni má sjá hversu illa fótur Eduardo fer. Að neðan er önnur mynd af atvikinu sem er enn verri og við vörum við.
Á myndinni má sjá hversu illa fótur Eduardo fer. Að neðan er önnur mynd af atvikinu sem er enn verri og við vörum við.
Mynd: Af netinu
Eduardo leikmaður Arsenal er á sjúkrahúsi í London eftir hræðilega tæklingu Martin Taylor leikmanns Birmingham í upphafi leiks liðanna sem hófst 12:45. Taylor fékk beint rautt spjald fyrir brotið og leikurinn tafðist í um sjö mínútur meðan hugað var að Eduardo sem er líklega brotinn á fæti.

Nú þegar eru komnar á netið myndir af atvikinu og það má sjá hér hægra megin og hér að neðan.

Á myndinni hægra megin sést brotið sjálft en að neðan sést hvernig fóturinn hefur brotnað.

Við vekjum athygli á því að myndirnar sýna vel hversu ljótt fótbrotið er og því er það ekki fyrir viðkvæma.

Smelltu hér til að sjá myndband 1 af atvikinu

Smelltu hér til að sjá nýtt myndband 2 af atvikinu.








Athugasemdir
banner