Tryggvi Sveinn Bjarnason í Stjörnuna (Staðfest)
Varnarmaðurinn Tryggvi Sveinn Bjarnason er genginn í raðir Stjörnunnar frá KR og gerir tveggja ára samning við Garðabæjarliðið. Þetta staðfesti Tryggvi sjálfur í samtali við Fótbolta.net í dag en viðtal við hann kemur hér á Fótbolta.net síðar í dag.
Tryggvi sem varð 25 ára gamall í janúar hefur leikið með KR og ÍBV hér á landi. Hann er uppalinn hjá KR en fór í tvær leiktíðir til ÍBV 2003 og 2004 þar sem hann lék í heildina 31 leik.
Hann á að baki 80 leiki í efstu deild hér á landi og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Hann lék fimm leiki í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar auk eins leiks í VISA-bikarnum sem hann skoraði í.
Hann hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands, samtals 21 leik.
Samningur Tryggva við KR rann út í október í fyrra.


