Manchester United 1-0 AS Roma (3-0 samanlagt)
1-0 C. Tevez ('70)
Manchester united og Roma mættust á Old Trafford í Manchester í kvöld. Þetta var seinni leikur liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en fyrri leikur liðanna endaði með 2-0 sigri United.
Manchester united og Roma mættust á Old Trafford í Manchester í kvöld. Þetta var seinni leikur liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en fyrri leikur liðanna endaði með 2-0 sigri United.
Lykilmenn voru ekki með í báðum liðum, en Francesco Totti, fyrirliði Roma var ekki með vegna meiðsla og þeir Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney, leikmenn Manchester United voru hvíldir. Mikael Silvestre spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið United eftir að hafa slitið krossbönd í hné í leik gegn Everton í byrjun tímabils.
Bæði lið komu ákveðin til leiks, en voru ekki að skapa sér neitt mikið. Ryan Giggs, Owen Hargreaves, sem lék sinn besta leik fyrir Manchester United síðan að hann kom til liðsins og Ji-Sung Park fengu ágætis færi, fyrir Englendingana en inn vildi boltinn ekki. Á hinum vallarhelmingnum fengu Mirko Vucinic og Mancini færi en eins og hjá United vildi boltinn ekki fara yfir línuna.
Þegar að hálftími var búinn af leiknum fékk Mancini boltann fyrir utan teig Manchester United og hann reyndi að taka Wes Brown, leikmann Manchester United á og Brown fór í tæklingu og hafði viðkomu í Mancini, sem féll. Tom Henning, norskur dómari leiksins dæmdi afar umdeilda vítaspyrnu. Daniele De Rossi fór á punktinn en boltinn fór himinhátt yfir markið.
Rio Ferdinand, leikmaður Manchester United var tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla á fæti sem hann hlaut í leik gegn Middlsebrough um síðustu helgi. Það þurfti að sauma þrjú spor í fótinn í hálfleik.
Rodrico Taddei, leikmaður Roma fékk boltann út í teig United og átti skot að marki, en Mikael Silvestre náði að tækla boltann í horn. David Pizarro tók hornið og átti Juan skalla sem Edwin van der Sar, markvörður United varði.
Ekki voru liðin að skapa sér mörg færi og mesta hættan skapaðist eftir hornspyrnur. Eftir eina slíka fékk Juan kjörið tækifæri til þess að koma Roma í 1-0, en hann hitti ekki boltann. Roma ætluðu að reyna að bæta lífi í sóknarleikinn með því að skipta Lodovic Giuly kom inn fyrir David Pizzarro.
Manchester mennirnir hresstust greinilega meira við skiptinguna, því í næstu sókn bar Carlos Tevez upp boltann og kom boltanum upp á hægri vænginn þar sem Owen Hargreaves var, en hann kom með sendingu inn í teiginn þar sem að Carlos Tevez kom á ferðinn og skallaði boltann laglega í netið. Doni, markvörður Roma kom engum vörnum við.
Það var söguleg stund fyrir Gary Neville, fyrirliða Manchester United þegar að tíu mínútur lifðu leiks. Hann kom þá inná í fyrsta skipti í heila 13 mánuði, en hann meiddist á ökkla á síðasta tímabili og hefur lent í nokkrum smávægis meiðslum eftir það.
Ekki voru mörkin fleiri og Manchester United vann sinn 11. sigur í röð á heimavelli í Meistaradeildinni og það er met. United komnir í undanúrslitin og mæta þeir þar Barcelona.




