Lagið "Bahama" með hljómsveitinni Veuðurguðunum er spilað ótt og tíð á útvarpsstöðum landsins þessa dagana og lagið er efst á íslenska listanum hjá FM957. Söngvari hljómsveitarinnar er Ingólfur Þórarinsson en hann er miðjumaður hjá 1.deildarliði Selfyssinga.
,,Þetta er mjög ánægjulegt fyrir okkur og gerir mikið fyrir hljómsveitina," sagði Ingólfur við Fótbolta.net í dag.
,,Ég læt fótboltann ganga fyrir, ég er ekki að sleppa æfingum eða leikjum, ég tek frekar aðeins færri gigg. Þetta er svolítið erfiður vinnutími, á nóttunni um helgar en það sleppur alveg í bili."
,,Það þýðir ekkert að vera í fótbolta og ætla að sleppa æfingu og leikjum, þá getur maður alveg eins verið í einhverju jogg liði. Ef þú ætlar að vera í þessu af alvöru er það ekkert hægt þannig að ég verð þá bara að taka færri gigg," sagði Ingólfur.
Á síðasta ári var lag spilað á Selfossvelli sem Ingólfur og yngri bróðir hans gerðu en sá síðarnefndi er einnig í yngri flokkunum á Selfossi. Búast má við að lagið Bahama verði spilað reglulega á Selfossvelli í sumar en erlendu leikmennirnir í Selfossliðinu eru mjög hrifnir af laginu.
,,Zoran þjálfari sagði við mig um daginn, ,Ingó, your hit-song Bahama, before every game we will play this song. (Ingó, vinsæla lagið þitt Bahama, við munum spila þetta lag fyrir alla leiki."'
"Júggarnir í liðinu fíla þetta mest, þeir eru mjög ánægðir með þetta. Það er bara vonandi að andstæðingarnir verði komnir með nógu mikið ógeð af því til að þetta trufli þá," sagði Ingólfur en hann sló á sínum tíma gegn í Idol-stjörnuleit á Stöð 2.
Síðastliðið haust skemmti hann áhorfendum í leikhléi í landsleikum þegar Íslendingar tóku á móti Spánverjum og Norður- Írum. Ekki er ljóst hvort Ingólfur muni halda áfram að skemmta í næstu landsleikjum en hann hvetur KSÍ til að ráða sig til starfa.
,,Það hefur ekkert komið upp í umræðuna ennþá en hins vegar myndi ég ráðleggja þeim hjá KSÍ að ráða mig í starfið vegna þess að Ísland hefur aldrei tapað þegar ég hef skemmt á landsleik og samt keppt við Norður-Írland og Spán. Ég er með mjög gott record í að skemmta í hálfleik."
Selfyssingar náðu því langþráða takmarki síðastliðið haust að komast upp í fyrstu deild og liðið mun leika þar í sumar.
,,Eins og staðan er núna er mjög jákvætt andrúmsloft og skemmtilegt. Það er óþarfi að vera montinn núna en þetta lítur ágætlega út miðað við fyrsta ár í fyrstu deild og það er allt á uppleið hérna," sagði Ingólfur að lokum við Fótbolta.net.


